Eitt það mikilvægasta í rekstri upplýsingakerfa er afritun gagna. Það er fyrirtækjum lífsnauðsynlegt að geta endurheimt gögn sem glatast. Diskar geta gefið sig, skrár geta glatast og vírusar valdið skemmdum á gögnum. Tölvum getur einnig verið stolið eða þær orðið óstarfhæfar af ýmsum ástæðum.
Það getur oft kostað miklar upphæðir að bjarga gögnum af skemmdum diskum. Þess vegna er afar mikilvægt að afrit sé tekið daglega og það sé geymt á öruggum stað.
Afritun Miðja.is er einföld leið til að tryggja öryggi þinna gagna. Afritunin byggir á öflugum búnaði sem hefur verið þrauteyndur. Afritið er tekið daglega og er geymt fjarri frumgögnum. Þess vegna geta notendur verið öryggir með afritið sitt og geta svo nálgast það aftur þegar á þarf að halda á einfaldan og fljótlegan máta.
Gögn geta verið mismunandi. Afritun Miðja.is gerir ekki greinarmun á því hvort um er að ræða ljósmyndir, ritvinnsluskjöl eða sérhæfða gagnagrunna á borð við Microsoft SQL, Oracle eða Lotus Notes. Afritunarkerfið þekkir öll helstu gagnasöfn og stýrikerfi og veit hvernig á að standa að afrituninni.
Verðin hér fyrir neðan eru viðmiðunarverð miðað við fast gagnamagn. Ef þú ert ekki viss um hversu mikið þú þarft að afrita þá breytir það engu, sendu okkur línu og við gefum þér fast tilboð.
GB | Verð* |
5 | 2.200 |
10 | 4.000 |
20 | 7.800 |
50 | 16.000 |
100 | 22.000 |
Verð pr GB umfram 100gb 49kr m.vsk Afritunarsamningur er bundinn í 3 mánuði.