Office365
Office365 og Miðja365
Office365 er í stuttu máli hýsingarþjónusta Microsoft sem byggir á veflausnum. Office365 er eitt stærsta og öruggasta hýsingarumhverfi heims.
Miðja.is hefur útbúið byltingarkennda þjónustuleið sem kallast Miðja365 og byggir að hluta til á tilbúnum hýsingarlausnum en einnig að stórum hluta á Office365 í samvinnu við Microsoft. Þessi þjónusta mun gera öllum kleift að fullnýta alla bestu tæknina á sem allra hagkvæmastan hátt.
Framtíðin er í einu orðin „ský“. Það er staðreynd að smá saman munu fyrirtæki færa sín tölvukerfi yfir til aðila sem eru sérhæfðir til að sinna þeim verkefnum. Engu fyrirtæki í dag myndi detta í hug að ráða mann til að keyra út bréf í pappírsformi, til þess höfum við Póstinn, þeir eru sérhæfðir til þess að bera út bréfpóst. Fyrir þá þjónustu greiðum við bara þegar við þurfum á henni að halda og myndum aldrei skuldbinda okkur okkur ekki á neinn hátt í þeirri þjónustu. Hugsunarhátturinn um að fyrirtæki verði að reka sín eigin tölvukerfi er að verða úreldur og hefur það sýnt sig að með sífellt betri gagnatengingum er hýsingarrekstur er verða stærri og vinnsælli með hverju árinu.
Hvað er Office365
Office365 er í raun svipað og hvert annað hýsingarumhverfi sem Microsoft rekur. Office365 er mjög fullkomið og mun hagkvæmari og öruggari kostur en áður hefur þekkst. Office365 býður upp á gríðarlega möguleika fyrir hvern sem er og gefur öllum jafnt tækifæri á að nota gríðarlega öflugan hugbúnað frá Microsoft sem flestir hefðu ekki getað dreymt um að nýta sér t.d. af fjárhagslegum ástæðum. Lítil fyrirtæki og einstaklingar geta með þessu móti nýtt sér þessa tækni. Fyrir utan það er þetta einnig mun öruggara og öflugra umhverfi en þekkist í öðrum hýsingarkerfum á Íslandi.
Hvers vegna Office365?
Í nútíma þjóðfélagi er öryggið mjög mikilvægt. Hér er kerfi sem er nánast ekki hægt að brjótast inn á né stöðva þjónustuna þar sem margir viðskiptavinir keyra á mörgum stöðum í heiminum samtímis. Þeir geta illa sigtað út ákveðna notendur eða ákveðin fyrirtæki innan skýsins og gert árás á þá, netþrjótar eiga því mjög erfitt með að gera árásir á stór tölvuský af þessum ástæðum. Einnig eru mjög hæfir starfsmenn Microsoft að fylgjast með skýinu allan sólahringinn alla daga ársins og bregðast mjög hratt við öllum árásum. Office365 vinnur á 128 bita SSL/TSL dulkóðun svo það er ógjörningur að lesa samskiptin ef einhver reynir að hlera þau. Vírusvarnir og annar búnaður er af fullkomnustu gerð með Exchange ForeFront. Öryggið er ein aðal ástæða þess að allir ættu að fara í skýjið en engin möguleiki er á að hýsingaraðili á Íslandi muni geta keppt við skýjið á grundvelli öryggismála.
Áræðanleiki er svo önnur ástæða en Microsoft ábyrgist 99.9% uppitíma samkvæmt (SLA) samning verður að greiða sektir ef það skeikar um eina mínútu. Microsoft hefur mörg gagnaver á mörgum stöðum í heiminum og engar líkur eru á að þau fari niður.
Ef fyrirtæki eru að sækjast eftir vottuðum ferlum, öryggisstöðlum eða öðru slíku þá er Office365 þjónustan vottuð með ISO 270001, hefur gengið í gegnum SAS70 Type I og Type II eftirlit og hefur náð EU Safe Harbor innsigli. Einnig hefur Microsoft sett upp möguleika fyrir fyrirtæki að ná sér í HIPAA og FERPA vottanir.
Uppfærslur og viðhald er önnur ástæða þess að nýta sér þjónustu Office365 en Microsoft sér um allt slíkt um leið og uppfærslurnar koma út svo ekki þarf að spá í þá hluti framar.
Stuðningur við eldri og annarskonar kerfi er einnig áhugaverður punktur en þeir sem vilja nota Linux, Mac eða eldri Windows stýrikerfi geta einnig nýtt sér þjónustu Office365.
Ekki sakar svo að hægt er að sækja um og setja upp Office365 aðgang á innan við 10 mínútum!
Hvað er innifalið í Office365
Í venjulegum Office365 pakka er innifalið :
– Exchange Online
- 25GB pósthólf með archiving möguleikum
- Fullkomin vefpóstur með öruggum skilríkjum og dulkóðun
- Tenging við farsíma
- Aðgengi hvaðan sem er
- Fullkomnar antivirus og anti-spam varnir með ForeFront
– Office pakkinn
- Office WebApps (Word, PowerPoint, Excel, OneNote)
- Office Professional Plus 2010
- 5 Professional Plus útstöðvarleyfi með E3 eða E4 þjónustuleiðum á hvaða útstöð sem er
– Sharepoint Online
- Sharepoint Enterprise möguleikar
- 10GB grunnpláss auk 500Mb á hvern notanda. Hægt að kaupa auka pláss fyrir lítið.
- My Sites síða fyrir alla notendur
- Team sites og Intranet/internet sites, vefsíða fyrir fyrirtækið
- Sharepoint Workspace fyrir skjalavinnslu
- Utanhús vefsíða fyrirtækisins
– Lync
- Fullkomið spjallkerfi og fjarfundakerfi
- Getur tengst Windows Live notendum og öðrum Lync kerfum
- Viðverukerfi starfsmanna með miklum tengingum við Office/Sharepoint
- Getur tengst símkerfum og orðið símkerfi fyrirtækisins
Lausnir fyrir alla starfsmenn
K þjónustuleiðir eru svokallaðar „kiosk“ leiðir. Það eru ódýrustu og minnstu leiðirnar en það gæti til dæmis hentað þeim sem aðeins þurfa á póstþjónustu að halda og aðgengi að gögnum.
E þjónustuleiðir eru „enterprise“ leiðir og eru fyrir alla almenna starfsmenn. Flestir myndu sennilega fara í E3 en þar er boðið upp á allt nema símþjónustu (Voice).
Stuðningur fyrir farsíma
Nýlegir Windows farsímar geta unnið í Office skjölum í gegnum Sharepoint online, nýtt sér spjallkerfi og fjarfundakerfi lync í gegnum símann ofl. Flest allir símar geta opnað póstinn.
Þjónustan í miðjunni
Miðja365 er þjónustulausn sem hentar öllum viðskiptavinum. Það er blönduð þjónusta á milli Office365 og kerfisleigu miðja.is. Þessi högun er byltingarkennd á Íslandi og hefur ekki verið í boði hjá öðrum enn sem komið er.
Aðallega er boðið er upp á tvær leiðir. Þær leiðir eru E3 og K1 sem bjóða upp á allt sem þarf. Ef aðstæður eru þannig er hægt að bjóða einnig upp á P1 sem er ætlað fyrir lítil fyrirtæki (small business)
Öllu er stýrt í gegnum kerfi Miðja.is og notendum er stýrt í gegnum kerfi miðja.is. Einnig er Exchange þjónn miðja.is tengdur þarna inn svo að hægt er að velja hvort notandi er í skýinu eða ekki. Þetta er gert með Federation Service 2.0. Starfsmenn miðja.is sjá einnig um eftirlit á kerfinu í gegnum System Center Operation Manager.
P1 þjónustuleiðin
Til eru fleiri leiðir sem hægt er að nota í sérstökum tilfellum, t.d. P1 (personal) en ef lítið fyrirtæki á Office 2007/2010 þá er hægt að fara þessa leið fyrir mun lægri upphæðir en í því fylgir ekki Office á útstöðvar. Hér eru þó ýmsar takmarkanir t.d er aldrei hægt að stækka uppfyrir 50 notendur, ekki er hægt að hafa bara suma í skýinu, Office er eingöngu aðgengilegt í gegnum vefinn, takmarkaður sharepoint, ekkert single sign-on, takmarkað pláss og ekki möguleiki á tengingu við símkerfi ásamt fleiru.
Einnig er hægt að kaupa einstakar þjónustuleiðir, t.d. Office í áskrift eingöngu.
Innleiðing og kennsla
Uppetning á Office365 er gríðarlega einföld. Allt er tilbúið og uppsett á nokkrum mínútum sem gerir kerfið þægilegra fyrir alla, bæði notendur og kerfisstjóra. Allt viðahald á vélbúnaði og stýrikerfum er í höndum Microsoft og keyrt á gríðarlega öflugum tölvubúnaði á mörgum stöðum í heiminum í „skýjinu“ svokallaða. Ábyrgst er um 99.9% uppitíma og er Microsoft skuldbundið til að standa við það og ef það bregst eru gefnir afslættir
Takmarkanir
Nokkrar takmarkanir gætu haft áhrif á einhverja viðskiptavini og gott er að hafa þær í huga. Það sem helst ber að nefna er að Public folders eru ekki í boði enda er Microsoft smá saman að henda því út. Í staðinn má nota Shared mailbox eða Sharepoint. 25mb takmörkun er á viðhengjum, 10mb í vefpósti. Hámark er hægt að senda 1500 pósta á sólahring og 500 viðtakendur í einu bréfi. 64kb takmark er á Inbox reglum og Lync Online getur ekki blandast við annað Lync kerfi á sama domaini.