Lykilorð

Ef lykilorðið þitt er að renna út eða er runnið út er hægt að breyta því með ýmsum hætti.

Fyrst af öllu skaltu prófa að fara inn á þessa slóð og skrá inn nauðsynlegar upplýsingar: http://mail.midja.is/owa/auth/expiredpassword.aspx 

Ef það gengur ekki skaltu prófa eftirfarandi:

– Skráðu þig inn á vefpóstinn í gegnum http://mail.midja.is og veldu „options“ og svo „change password“ eða „valkostir“ og „breyta lykilorði“ ef vefpósturinn þinn er stilltur á íslensku.
– Skráðu þig inn í hýsingarumhverfi midja.is (ef þú ert með slíkt) og smelltu á CTRL+ALT+END og veldu „change password“ eða „breyta lykilorði“.
– Skráðu þig inn á útstöðina þína  (ef útstöðin þin er tengd beint inn á midja.is) og smelltu á CTRL+ALT+DEL og veldu „change password“ eða „breyta lykilorði“