Hýsing |  Afritun |  Kerfisleiga |  Rekstrarþjónusta | 


Hlusta á texta
Sæki hljóðskrá...

Afritun

Afritun gagna á Miðja.is Eitt það mikilvægasta í rekstri á upplýsingakerfum er afritun gagna. Það er alveg lífsnauðsynlegt að geta endurheimt gögn sem glatast eða skemmast. Diskar geta gefið sig, skrár geta glatast og svo geta vírusar valdið skemmdum. Oft á tíðum er tölvum stolið eða verða óstarfhæfar vegna eldsvoða og vatnsleka.

Það getur kostað miklar upphæðir að bjarga gögnum af biluðum diskum. Þess vegna er mikilvægt að afrit sé tekið og það geymt á traustum stað.

Afritun á Midja.is er einföld leið til að tryggja öryggi gagna. Afritunin byggir á öflugum hugbúnaði sem hefur verið í notkun í fjölda mörg ár. Afritið er geymt fjarri frumgögnum og síðan afritað aftur á auka afritunarstað. Þess vegna geturðu verið öruggur með afritið þitt og getur nálgast það á einfaldan og fljótlegan máta.

Gögn geta verið mismunandi, afritun á Midja.is gerir ekki greinarmun á því hvort um er að ræða ljósmyndir, ritvinnsluskjöl eða sérhæfðir gagnagrunna á borð við Microsoft SQL, Oracle eða Lotus Notes. Afritunarkerfið þekkir öll helstu gagnasöfn og stýrikerfi og veit hvernig á að standa að afrituninni.

Heimilisafritun

 

GB

Verð*

10

890

30

1.890

50

2.890

100

4.890

 

 Verð pr GB umfram 100gb 49kr mvsk

 

 * Verð miðast við boðgreiðslur með kreditkorti.

 

Afritunarsamningur er bundinn í 3mánuði.

 
 

Fyrirtækjaafritun

 

GB

Verð*

5

2.200

10

4.000

20

7.800

50

16.000

100

22.000

 

Verð pr GB umfram 100gb 200kr mvsk

 

* Afritunarsamningur er bundinn í 6mánuði.

 




 




Miðja.is - Sími 480 3303  midja@midja.is  - Kynntu þér málið hjá sölumönnum okkar. Þú sérð ekki eftir því!